Öll næstum slys, minniháttar slys, fjarveruslys og ábendingar um hættu eða frávik skal skrá í ATVIK. Öll slys þar sem starfsmaður verður óvinnufær í a.m.k. einn dag auk dagsins sem slysið varð ber yfirmanni starfsmanns sem fyrir slysinu varð að tilkynna það til Vinnueftirlitsins úr ATVIK. Ef slys er það alvarlegt að líkur eru taldar á að starfsmaður hafi orðið fyrir langvinnu eða varanlegu heilsutjóni ber að tilkynna Vinnueftirlitinu um slysið innan sólarhrings svo vettvangsrannsókn geti farið fram.
Starfsfólk skráir sig inn í rafræna atvikaskráningarkerfið ATVIK með rafrænum skilríkjum.
Upplýsingar og leiðbeiningar um innskráningu eru aðgengilegar á öllum starfsstöðvum Akureyrarbæjar.
Mikilvægt er að tilkynna tjón sem allra fyrst eftir að tjónsatburður á sér stað, hvort sem um er að ræða vinnuslys eða frítímaslys. Með því er tryggt að réttindi vegna mögulegra bóta glatist ekki vegna fyrningar. Vinnuveitandi tilkynnir ekki frítímaslys fyrir hönd starfsmanns. Sá sem verður fyrir frítímaslysi ber sjálfur ábyrgð á að tilkynna tjónið bæði til eigin tryggingafélags og til tryggingafélags Akureyrarbæjar. Almennt skal ekki draga að tilkynna tjón og mikilvægt er að það sé gert innan árs frá því að tjónsatburðurinn átti sér stað.
Vinnuslys
Verklag vegna vinnuslysa hjá Akureyrarbæ
Slys
Slys á leikskóla- og grunnskólabörnum
Slys í frítíma
Vinnuvernd á vinnustað
Vinnuveitendum ber að uppfylla ýmis lög og reglur er varða vinnuvernd á vinnustað:
Reglugerð um vinnu barna og unglinga
Reglur um hávaðavarnir á vinnustöðum og heyrnareftirlit
Reglur um réttindi til ad stjórna vinnuvélum
Reglur um skjávinnu
Reglur um öryggi og hollustu þegar byrðar eru handleiknar
Á heimasíðu Vinnueftirlitsins er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar t.d. um öryggi og heilbrigði á vinnustað og vinnu barna og unglinga.
Bæklingur um hættu á heilsutjóni vegna gosösku
Tjón
Undir öllum kringumstæðum er nauðsynlegt að láta bæjarlögmann vita og senda honum gögn um mál ef eignatjón verður á lausafé og húseignum bæjarins.
Öryggismál
Hér eru greinar sem varða öryggismál á vinnustöðum bæjarins, svo sem greinar um öryggisverði, öryggistrúnaðarmenn, öryggismat og lyfjapróf.
Glærur frá námskeiði um áhættumat
Skráningarblað fyrir áhættumat
Vinnuumhverfisvísar
Greinargerð um lyfjapróf