Akureyrarbær setur nýjar reglur um ábyrga notkun gervigreindar

Akureyrarbær hefur sett fram nýjar reglur um notkun gervigreindar í starfsemi bæjarins. Markmiðið er að tryggja örugga, gagnsæja og ábyrga notkun tækninnar til að bæta þjónustu, auka skilvirkni og styðja við faglega vinnu.

Reglurnar skýra hvaða verkefni má vinna með gervigreind, svo sem þýðingar, samantektir, textavinnu og úrvinnslu funda- og skjalagagna. Eingöngu má vinna með opinber gögn í opnum gervigreindartólum, en viðkvæmar upplýsingar og innri gögn eru alfarið óheimil í slíkum kerfum.

Sértæk gervigreindartól, svo sem Microsoft Copilot, má nota innan lokaðs, öruggs umhverfis með sérstöku leyfi. Þá þarf ávallt að fylgja reglum um persónuvernd, öryggi gagna og áhættumat.

Starfsfólk mun fá fræðslu og stuðning í notkun gervigreindar og verða reglurnar endurskoðaðar árlega. Áhersla er lögð á ábyrgð starfsmanna, gagnsæi og að gervigreind komi aldrei í stað mannlegrar vinnu.

Reglurnar eru aðgengilegar hér á starfsmannavefnum, undir hnappinum Skjala- og tölvumál. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan