Nú styttist heldur betur í árshátíð Akureyrarbæjar – árshátíðina okkar!
Laugardaginn 10. október tökum við Íþróttahöllina yfir og eigum saman glæsilegt kvöld með góðum mat frá Bautanum, Audda og Steinda í veislustjórn og hljómsveitinni Babies flokknum á sviðinu. Það stefnir því allt í alvöru gleðikvöld í the City of Joy!
Miðasala hefst á mánudaginn og þá fáið þið sendan skráningarhlekk í tölvupósti. Starfsfólki Akureyrarbæjar er boðið á árshátíðina en miðaverð fyrir maka er 11.000 kr.
Matseðill
Fordrykkur, smáréttir, sushi og snittur við komu
- Freyðivín og óáfengt freyðivín
- Reykt bleikja á blini með eplasalati og dilli
• Snitta með tómötum og tapenade
• Lax með kryddjurtaosti, papriku, salati og sætri teriyaki-sósu
• „Surf & turf“ með humartempura, nautaþynnum, unagi og hvítlauksmajónesi
• Mangó, agúrka, graslaukur, chili-majónes og unagi-sósa
• Kjúklingakaraage á spjóti með BBQ-sósu, kewpie-majónesi og tsuma
Aðalréttur
Grilluð nautalund í RUB23-kryddblöndu, borin fram með nípumauki, kartöflum, hunangsgljáðum gulrótum, hvítlauksristuðum sveppum og soðsósu.
Eftirréttur
Hvít súkkulaðimús með hindberjum, lakkrís og berjasósu.
Sérfæði og ofnæmi
Þau sem þurfa sérfæði, meðal annars vegan- eða pescetarian-fæði, eru vinsamlegast beðin um að senda tölvupóst á bautinn@bautinn.is. Í póstinum þarf að koma fram nafn viðkomandi og vinnustaður ásamt upplýsingum um óskir eða ofnæmi.
Takið daginn frá, finnið sparifötin og byrjið að hita upp danssporin. Allir út á gólf og enginn heim fyrir tólf!
Hlökkum til að fagna með ykkur!
Bestu kveðjur,
Árshátíðarnefnd Akureyrarbæjar