Nýr rammasamningur um bílaleigubíla tók gildi þann 23.09.2025 og gildir í eitt ár.
Samningurinn nær yfir alla skammtíma- og langtímaleigu innanlands á fólksbílum, jeppum og 7-9 manna smárútum.
Bílaleiga Akureyrar er svokallaður forgangsbirgi, bæði í hluta A og hluta B. Þetta þýðir að bílaleiga Akureyrar er nú fyrsti kostur aðila rammasamningsins þegar kemur að bílaleigum.
Alltaf skal leigja rafmagnsbíla ef hægt er, miðað við aðstæður og þarfir kaupanda hverju sinni (sjá reglugerð nr. 1330/2023 um opinber innkaup á vistvænum og orkunýtnum ökutækjum).
Í beinum kaupum skal versla við Höldur ehf. Ef Höldur getur ekki afhent bíl í þeim flokki sem óskað er eftir á þeim stað og tíma sem óskað er eftir, skal beina viðskiptum til Bílaleigu Flugleiða Hertz ehf. Ef Bílaleiga Flugleiða Hertz ehf. getur ekki afhent þá skal beina viðskiptum til Alp hf. (Avis).
Ekki er heimilt að leigja bílaleigubíla hjá öðrum en þessum þremur samningsaðilum. Undantekning er aðeins heimil ef reynt hefur verið að leigja bíl hjá öllum þremur en enginn þeirra getur afhent bíl í viðkomandi flokki, á tilgreindum stað og á umbeðnum tíma. Viðskipti utan samnings að öðrum kosti geta leitt til skaðabótaskyldu fyrir kaupanda.
Best er að bóka bíl hjá í gegnum flýtibókun fyrirtækja, https://flytibokun.holdur.is/is
Netfang: holdur@holdur.is
Sími: 461-6000
Opnunartími: 8 - 17 virka daga