Í síðustu viku veitti Heilsuráð Akureyrarbæjar þremur stofnunum bæjarins viðurkenningar fyrir frábæran árangur og þátttöku í Hjólað í vinnuna sem fór fram maí slíðastliðnum.
Stofnanirnar sem hlutu viðurkenningu áttu það allar sameiginlegt að skora yfir 4,5 í hlutfalli daga (fjöldi starfsmanna/fjölda skráðra daga) sem og á lista yfir 10 efstu lið í sínum flokki á landsvísu. Það sem meira er að þessar stofnanir voru líka í einu af þremur efstu sætunum í sínum flokki á landsvísu. Viðurkenningu heilsuráðs 2025 hlutu Brekkuskóli (sem var efstur í sínum flokki á landsvísu), Síðuskóli (sem var í öðru sæti í sínum flokki á landsvísu) og Amtsbókasafnið/Héraðsskjalasafnið (sem var í þriðja sæti í sínum flokki á landsvísu). Þessar stofnanir hlutu einnig viðurkenningu frá Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands við sama tækifæri.
Meðfylgjandi myndir eru þegar fulltrúar þessara stofnana taka við viðurkenningu Heilsuráðsins og ÍSÍ.
Til hamingju með frábæran árangur starfsfólk Brekkuskóla, Síðuskóla og Amtsbókasafnsins/Héraðsskjalasafnsins!

