Árshátíð Akureyrarbæjar fór fram með glæsibrag í Íþróttahöllinni á Akureyri laugardaginn 10. október. Um 1.200 starfsmenn og makar þeirra sóttu hátíðina og skemmtu sér vel saman. Mikill áhugi var á viðburðinum og komust færri að en vildu.
Kvöldið hófst á því að bæjarstjóri Akureyrarbæjar, Berglind Ósk Guðmundsdóttir bauð gesti velkomna áður en veislustjórarnir Auddi og Steindi tóku við keflinu og leiddu dagskrána af sinni alkunnu snilld.
Gestir nutu glæsilegs veislumatar frá Bautanum og skemmtidagskráin var fjölbreytt. Hljómsveitin Babies Flokkurinn hélt uppi fjörinu og fyllti dansgólfið, auk þess sem Sumarliði Helgason sviðsstjóri þjónustu- og menningarsviðs og Jón Þór Kristjánsson fyrrverandi forstöðumaður þjónustu og þróunar stýrðu fjöldasöng við góðar undirtektir.
Einn af hápunktum kvöldsins var þegar leynigestur kvöldsins reyndist vera stórstjarnan og Akureyringurinn Saint Pete. Hann kom fram ásamt félögum sínum og fluttu meðal annars lagið City of Joy, sem fékk frábærar viðtökur gesta.
Ýmislegt var í boði fyrir þá sem vildu prófa eitthvað nýtt. Á efri hæð hallarinnar var vinsæl karókíaðstaða þar sem margir létu ljós sitt skína. Þá var einnig hægt að fá sér tímabundið tattú, spjalla yfir nammibarnum og festa skemmtilegar minningar á mynd í myndakössum.
Þegar leið á kvöldið og gestir fóru að halda heim á leið gátu þeir sem orðnir voru svangir komið við hjá Bessabita sem bauð upp á gómsæta hamborgara úr matarvagni fyrir utan höllina. Gestum bauðst einnig að grípa með sér Happy Hydrate drykk til að eiga fyrir daginn eftir.
Skipulag og framkvæmd árshátíðarinnar var í höndum starfsfólks þjónustu- og menningarsviðs ásamt starfsfólki skipulagssviðs sem vann að undirbúningi og framkvæmd viðburðarins af miklum metnaði.
Árshátíðarnefnd þakkar öllum sem mættu og tóku þátt í að skapa eftirminnilegt kvöld. Nú tekur við bið fram að næstu árshátíð sem verður haldin eftir tvö ár undir stjórn umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Bestu þakkir fyrir frábært kvöld og góða samveru!
Kær kveðja,
Árshátíðarnefnd Akureyrarbæjar