Hjólað í vinnuna 2026 - úrslit

Í síðustu viku veitti Heilsuráð Akureyrarbæjar þremur stofnunum bæjarins viðurkenningar fyrir frábæran árangur og þátttöku í Hjólað í vinnuna sem fór fram maí síðast liðnum.

Stofnanirnar sem hlutu viðurkenningu áttu það allar sameiginlegt að skora yfir 4,5 í hlutfalli daga (fjöldi starfsmanna/fjölda skráðra daga) sem og vera á lista yfir 10 efstu lið í sínum flokki á landsvísu. Það sem meira er að tvær þessara stofnanna voru líka í einu af þremur efstu sætunum í sínum flokki á landsvísu og fá einnig viðurkenningu frá ÍSÍ. Viðurkenningu heilsuráðs 2026 hlutu Síðuskóli (sem var í 2.sæti í sínum flokki á landsvísu), Leikskólinn Hulduheimar (sem var í 2.sæti í sínum flokki á landsvísu) og Heilsuleikskólinn Krógaból (sem var í 8.sæti í sínum flokki á landsvísu)

Meðfylgjandi myndir eru þegar fulltrúar þessara stofnana taka við viðurkenningu Heilsuráðsins.

Til hamingju með frábæran árangur starfsfólk Síðuskóla, Hulduheima og Krógabóls

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan