Nýlega afhenti heilsuráð Akureyrarbæjar viðurkenningu fyrir góðan árangur og enn þá betri frammistöðu vinnustaða og stofnanna Akureyrarbæjar í Lífshlaupinu 2026.
Barnaverndarþjónustan á norðurlandi eystra hlaut viðurkenningu í ár fyrir góðan árangur meðal stofnanna Akureyrarbæjar. Barnaverndarþjónustan stóð sig best meðal vinnustaða Akureyrarbæjar á landsvísu þar sem vinnustaðurinn var í 8. sæti af 160 skráðum vinnustöðum í keppni vinnustaða með 10-29 starfsmenn. Nánar um úrslit í Lífshlaupinu hér.
Heilsuráð óskar starfsmönnum Barnaverndarþjónustunnar á norðurlandi eystra til hamingju með góðan árangur og þakkar þeim fyrir að vera öðrum til fyrirmyndar og hvetur alla, líka land og þjóð til að halda áfram að hlúa að hreyfingu og heilsueflingu inn í sumarið og að eilífu.
Á meðfylgjandi myndum eru fulltrúar Barnaverndarþjónustunnar sem tóku við bikarnum fyrir góðan árangur.