Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan
Heilsupistill Heilsuverndar

Heilsupistill Heilsuverndar

Nýjasti heilsupistill Heilsuverndar er kominn út og umfjöllunarefnið er líkamsrækt.
Lesa fréttina Heilsupistill Heilsuverndar
Segðu einhverjum sem þú elskar hversu mikilvægur hann er þér

Segðu einhverjum sem þú elskar hversu mikilvægur hann er þér

Heilsuvernd hefur sent frá sér dagatal fyrir maí mánuð.
Lesa fréttina Segðu einhverjum sem þú elskar hversu mikilvægur hann er þér
Orlofið greitt út 9. maí 2020

Orlofið greitt út 9. maí 2020

Landsbankinn mun greiða út orlof vegna yfirvinnu þann 9. maí og verður það lagt inn á launareikninga.
Lesa fréttina Orlofið greitt út 9. maí 2020
Hjólað í vinnuna 2020

Hjólað í vinnuna 2020

Vinnustaðaátakið „Hjólað í vinnuna" hófst í dag 6. maí og stendur til 26. maí. Allir geta tekið þátt í Hjólað í vinnuna svo framarlega sem þeir nýta eigin orku til að ferðast til og frá vinnu þ.e. hjóla, ganga, hlaupa, nota línuskauta o.s.frv.
Lesa fréttina Hjólað í vinnuna 2020
Er stuttur þráðurinn?

Er stuttur þráðurinn?

Anna Lóa hjá Virk gefur góð ráð á álagstímum. Eitt það fyrsta sem fer í álagi er hæfileiki okkar til samskipta. Við þurfum að vera meðvituð um hvernig við bregðumst við álagi, hvaða bjargráð virka fyrir hvert og eitt okkar og mikilvægi þess að nýta þau á óvissutímum.
Lesa fréttina Er stuttur þráðurinn?
Námskeið í boði starfsmenntasjóða á næstunni

Námskeið í boði starfsmenntasjóða á næstunni

Framundan hjá SÍMEY eru spennandi fjarnámskeið og greiða eftirfarandi starfsmenntasjóðir þátttökugjald að fullu fyrir sína félagsmenn. Þetta eru starfsmenntasjóðir Einingar-Iðju, Kjalar og Sameykis.
Lesa fréttina Námskeið í boði starfsmenntasjóða á næstunni
Sóttkví og fjarvistir v. COVID-19: spurt & svarað

Sóttkví og fjarvistir v. COVID-19: spurt & svarað

Komin er inn síða í starfsmannahandbók þar sem helstu spurningum varðandi sóttkví og fjarvistir vegna COVID-19 er svarað. Við gerum ráð fyrir því að fleiri spurningar, og þar með svör, kunni að bætast við þegar fram líða stundir og mun listinn verða uppfærður samkvæmt því. Til hægri á meginsíðu er hnappurinn Sóttkví og fjarvistir v. COVID-19: spurt & svarað og leiðir hann ykkur á síðuna sem er á eftirfarandi slóð: https://www.akureyri.is/starfsmannahandbok/moya/page/sottkvi-spurt-svarad-1
Lesa fréttina Sóttkví og fjarvistir v. COVID-19: spurt & svarað
Innleiðing á hönnunarstaðli

Innleiðing á hönnunarstaðli

Á fundi bæjarstjórnar 3. desember sl. voru samþykktar reglur um notkun á merki bæjarins og hönnunarstaðall. Þetta er í fyrsta skipti sem sveitarfélagið vinnur í samræmi við hönnunarstaðal en í honum er fjallað um notkun byggðarmerkis bæjarins og meðferð á gögnum og markaðsefni í nafni Akureyrarbæjar og er tilgangurinn að veita skýrar leiðbeiningar um samhæfða og stílhreina framsetningu gagna og kynningarefnis um starfsemi bæjarins. Öll svið og stofnanir bæjarins skulu fylgja hönnunarstaðlinum.
Lesa fréttina Innleiðing á hönnunarstaðli

Fyrirkomulag á útborgun launa

Í þeim kjarasamningum sem búið er að samþykkja hjá sveitarfélögum var gerð breyting á texta um útborgun launa en í grein 1.1.1.1 segir að: 1.1.1.1 Föst laun skulu greidd eftir á, eigi síðar en fyrsta dag hvers mánaðar. Beri fyrsta dag mánaðar upp á frídegi skal útborgun launa fara fram síðasta virka dag þar á undan. Sami texti mun koma í alla samninga sem gengið verður frá á næstu mánuðum og er fyrirkomulag útborgana í samræmi við breytt ákvæði kjarasamninga. Þetta þýðir að laun eru greidd út fyrsta virka dag hvers mánaðar nema ef fyrsti dagur mánaðar beri upp á frídegi.
Lesa fréttina Fyrirkomulag á útborgun launa
Námsleyfasjóðir auglýsa ekki eftir umsóknum fyrir skólaárið 2020-2021 vegna stöðu sjóðanna

Námsleyfasjóðir auglýsa ekki eftir umsóknum fyrir skólaárið 2020-2021 vegna stöðu sjóðanna

Eftirfarandi bókanir voru gerðar á fundi fræðslunefndar 30. mars sl. 1. Staða námsleyfasjóðs sérmenntaðs starfsfólks Akureyrarbæjar Bókun: Með vísan til stöðu námsleyfasjóðs sérmenntaðs starfsfólks Akureyrarbæjar samþykkir fræðslunefnd Akureyrarbæjar að auglýsa ekki eftir umsóknum um styrki vegna náms á árunum 2020-2021. 2. Staða námsleyfasjóðs embættismanna Akureyrarbæjar Bókun: Með vísan til stöðu námsleyfasjóðs embættismanna Akureyrarbæjar samþykkir fræðslunefnd Akureyrarbæjar að auglýsa ekki eftir umsóknum um styrki vegna náms á árunum 2020-2021.
Lesa fréttina Námsleyfasjóðir auglýsa ekki eftir umsóknum fyrir skólaárið 2020-2021 vegna stöðu sjóðanna
Smástund – Sjálfsþjónustuvefur fyrir snjallsíma

Smástund – Sjálfsþjónustuvefur fyrir snjallsíma

Nýjung fyrir Vinnustund. Þróaður hefur verið sjálfsþjónustuvefur fyrir snjallsíma sem er tenging við Vinnustund. Vefslóðin er smastund.akureyri.is og gildir sami aðgangur og að Vinnustund. Það tekur smástund að opna vefinn í fyrsta skiptið. Stuttar leiðbeiningar má finna hér. Ábendingar og spurningar skulu sendar í tölvupósti á kristjana@akureyri.is eða jonsb@akureyri.is
Lesa fréttina Smástund – Sjálfsþjónustuvefur fyrir snjallsíma